Difrax Pinky Premature Soother 0-2M
$49.69
$95.9
Difrax Pinky Soother er sérstakt snuð með plássi fyrir litla fingurinn þinn. Snuðið er tilvalið hjálpartæki til að stuðla að sogviðbragði fyrirbura og nýbura (-2M til 2M) og góð leið til að tengjast barninu þínu. Með því að hafa litla fingurinn í snuðinu getur þú hreyft snuðið og örvað sogviðbragð barnsins. Þannig lærir barnið að sjúga sem auðveldar það að læra að drekka, hvort sem það er á brjósti eða úr pela. Pinky soother er einnig hægt að nota sem venjulegt snuð fyrir fyrirbura með því að sleppa því að nota litla fingurinn. Örvar náttúrulegt sogviðbragð barnsins Eykur nánd milli foreldris og barns Hjálpar barninu að taka snuð 100% sílíkon: öruggt, auðvelt að þrífa, bragðlaust og ofnæmislaust Þróað í samvinnu við lækna Koma 2 saman í pakka Ein stærð Þar sem skjöldur snuðsins er fiðrildalagaður, fellur það vel að munni barnsins og það loftar vel um vitin. Götin á skildinum veita umfram loftflæði og koma þannig í veg fyrir ertingu í húðinni. Ráðlagt er að snuðum sé skipt út á 6 vikna fresti. Einnig er mikilvægt að framkvæma daglega athugun á snuði, toga þéttingsfast í túttuna sjálfa og ganga úr skugga um að snuðið sé heilt og óskemmt.
Snuð